Færslur: 2013 Júní30.06.2013 23:057775 -Amma Kibba
Skrifað af Þorgeir 30.06.2013 14:10Beitir NK 123
Skrifað af Þorgeir 30.06.2013 13:371512 -Jón kjartansson Su 111
Skrifað af Þorgeir 29.06.2013 17:20Hvalaskoðun á Eyjafirði i morgun
Skrifað af Þorgeir 24.06.2013 22:18Kvöldsólastemming i Eyjafirði Kvöldstemming við Höfnina © mynd þorgeir Baldursson 2013 Horft á sólarlagið með brosi á vör © mynd þorgeir Baldursson 2013 Það er oft fallegt sólalagið við Eyjafjörð eins og þessar myndir bera með sér Skrifað af Þorgeir 23.06.2013 10:27Óli Gisla Hu212 græjaður á Makrilveiðar hjá Dng á Akureyri Óli Gisla Hu 212 i slippnum © mynd þorgeir Baldursson 2013 Talsverður búnaður fylgir makrilveiðum © mynd þorgeir Baldursson 2013 Dráttarbúnaðurinn eru öflugarvindur © mynd þorgeir Baldursson 2013 Haldið heimleiðis i gærkveldi © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Tekin smá hringur © mynd þorgeir Baldursson 2013 klár i heimstim © mynd þorgeir Baldursson 2013 Sett á fulla ferð heimleiðis © mynd þorgeir Baldursson 2013 Siglt út Eyjafjörð i bliðu veðri © mynd þorgeir Baldursson 2013 Plastbáturinn Óli Gisla HU 212 hefur verið i Breytingum hjá DNG á Akureyri i bátinn var settur Makrilbúnaður sem samanstendur af 8 tækjum með um 40 krókum hvert smiðuð voru álkör i lestina og Sjópústi breytt i þurrpúst ásamt öðru smálegu sem að tengist slipptöku það kláraðist um helgina og hélt báturinn til heimahafnar eftir prófanir stafsmanna DNG i gærkveldi Skrifað af Þorgeir 23.06.2013 00:44Jósup VA 450 ný ferja til FæreyjaFarþegaskip til Færeyja
Seigla hefur
nú nýlokið smíði ferju fyrir Færeyinga. Ferjan er hin glæsilegasta í alla staði
og haft var í fyrirrúmi að þægindi fyrir farþega yrði með sem besta móti.
Ferjan rúmar yfir 70 farþega í sæti innandyra ásamt bekkjum með sætum á efra
dekki fyrir a.m.k. 20 farþega. Ganghraði ferjunnar er um 22 sjómílur á
klukkustund. Í reynslusiglingu var ganghraði skipsins um 32 mílur, en vegna
takmarkana á hraða farþegaflutningaskipa í Færeyjum hefur nú ganghraði ferjunnar
verið takmarkaður við 22 sjómílur. Stærð ferjunnar er 15 metrar að lengd og 5,20
metrar að breidd. Eigandi
Seiglu, Sverrir Bergsson, ásamt kaupendum þess og völdum gestum, sigldu skipinu
út til Færeyja og reyndist skipið afar vel. Strekkingsvindur eða frá 10-15
metrum voru á leiðinni, þrátt
fyrir það reyndist unnt að sigla skipinu alla leið á um 20 mílna hraða.
Töluvert hvítnaði á báru í byrjun ferðalags og var skipinu siglt móti báru
fyrstu klukkustundirnar með töluverðri ágjöf. Þrátt fyrir töluverða ágjöf hélst
efra dekk skipsins tiltölulega þurrt og var nánast hægt að ganga um efra þilfar
þess á sokkaleistunum án þess að vökna í fæturnar. Áhöfn skipsins var ánægð með
skipið og eftir því sem leið á ferðalagið var báran meira á hlið og síðustu
mílurnar voru hinar þægilegustu. Afar strangar
kröfur til brunamála, hljóðeinangrunar og stöðugleika eru gerðar til
farþegaskipa sem stunda flutninga á fólki í Færeyjum og Danmörku af Dönsku
siglingastofnunni. Stofnunin setur kröfur langt umfram það sem tíðkast hér á
landi og flestum öðrum löndum hvað varðar þessa þætti. Öll skip Seiglu eru
einangruð með kjarna og því reyndist verkið léttara að uppfylla kröfur varðandi
hljóðeinangrun. Innandyra sem utan voru valin efni notuð á veggi, gólf, loft og
hurðir til að uppfylla ströngustu skilyrði brunamála. Varðandi lekastöðugleika
voru settir um 30 sjótankar sem samtals taka um 26,5 m3 eða um 26,5
tonn af sjó til þess uppfylla stöðugleikakröfur. Gaman er að geta þess að
skipið með 70 farþega um borð og hálffulla tanka hélt eftir sem áður 22 mílna
hraða á klukkustund í fyrstu farþegaferð sinni. Farþegaskipið
hefur fengið nafnið Brynhildur og er eigandi skipsins Sp/f Mykines. Mykines er
í eigu Tomasar Henriksson framkvæmdastjóra og fjölskyldu hans. Mun ferjan verða
notuð fyrir farþega- og birgðaflutninga frá Sørvágur til Mykines allan ársins
hring. Farþegaskipið er nú þegar byrjað að sinna farþegaflutningum og hefur eigandi
Seiglu, Sverrir Bergsson verið með eigendum skipsins í fyrstu ferðunum og hefur
verið almenn ánægja farþega, eiganda og áhafnar með nýja skipið. Tæknilýsing: ·
Lengd:
15 metrar. ·
Breidd:
5,2 metrar. ·
Djúprista:
1 meter. ·
Aðalvél:
Tvær 700 hestafla 13L Volvo Penta vélar. ·
Siglingatæki:
Öll siglingatæki eru af Simrad gerð. ·
Brúttótonn: ·
Gírkassi:
ZF 325 IV ·
Ganghraði:
32 mílur . Vinnuhraði 22 milur Skömmu fyrir Sjósetningu © Mynd þorgeir Baldursson 2013 Á fullri ferð á Eyjafirði © mynd þorgeir Baldursson 2013 Glæsileg hönnun á þessari ferju © mynd þorgeir Baldursson 2013 Eldhús krókurinn © mynd þorgeir Baldursson 2013 Pláss er fyrir um 70 farþega um borð i bátnum © mynd þorgeir Baldursson 2013 Tvö salerni eru um borð © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Dekkplássið fyrir framan brú er talsvert © mynd þorgeir Baldursson 2013 Horft aftur eftir Bátnum © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Siglingatækin eru af fullkomnustu gerð frá Simrad © mynd þorgeir Baldursson 2013 Vélarrúmið tvær 700 hp 13L Volvo penta ©mynd þorgeir Baldursson 2013 Sverrir Bergsson ásamt kaupendum ferjunnar © mynd þorgeir Baldursson 2013 Kaupin Handsöluð að islenskum sið © mynd þorgeir Baldursson 2013 Skipstjórinn i Brúnni © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Haldið út Eyjafjörð i bliðskaprveðri áleiðis til Færeyja © mynd þorgeir Baldursson 2013 Skrifað af Þorgeir 07.06.2013 23:34Fraktskip og skemmtiferðarskip á Eyjafirði i kvöld Skemmtiferðaskipið Artania við Bryggju á Akureyri i kvöld © Mynd þorgeir Baldursson 2013 Artania og Horst B mætast á Eyjafirði i kvöld © mynd þorgeir Baldursson 2013 Skipin Mætast við Svalbarðseyri © mynd þorgeir Baldursson 2013 Mæting á Eyjafirði © mynd þorgeir 2013 Horst B á pollinum á Akureyri mynd þorgeir 2013 Skemmtiferðaskipið Artania lét úr höfn á Akureyri i kvöld Skipið er smiðað 1984 og er 230 metra langt 0g 32 m á breidd ganghraði er 19.9 milur max en normal 16.5 skipið er 44588 tonn og það er skráð i Bermuda Flutningaskipið Horst B er Smiðað 1994 Lengd þess er 122 m og breiddin er 21 m Ganghraði er 14.7 skipið er 6297 tonn og það er skráð i Liberiu en mun vera leiguskip hjá Eimskip Skrifað af Þorgeir 07.06.2013 09:13Ambassador Nýr hvalaskoðunnarbátur á Akureyri Ambassador á Eyjafirði i gærdag © mynd þorgeir Baldursson 2013 Ambassador á fullri ferð © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Með Akureyri i bakgrunni © mynd þorgeir Baldursson 2013 Vignir Sigursveinsson og Magnús Guðjónsson © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Vignir Sigursveinsson Skipstjóri Ambassador © mynd þorgeir 2013 Nýtt hvalaskoðunnar fyrirtæki Ambassador ehf hefur verið stofnað á Akureyri og kom skipið til heimahafnar i gær frá Njarðvik þar sem að það hefur verið i endurbótum fyrir þá starfsemi sem að þvi er ætlað Að fyrirtækinu standa nokkrir aðilar sem hafa áralanga reynslu af útgerð og rekstri hvalaskoðunarfyrirtækja. Sl. Haust keypti fyrirtækið bátinn Ambassador í Svíþjóð en þar hafði hann verið um nokkurra ára skeið sem skemmtisnekkja í einkaeign. Báturinn var upphaflega byggður sem lögreglubátur og var hann þá gerður út frá Hamborg í Þýskalandi, þar sem hann var byggður árið 1971. Á árunum 1995 - 1998 var bátnum breytt mikið og allir innviðir hans endurnýjaðir, auk þess sem vél og tæknibúnaður var tekinn upp og endurnýjaður að verulegum hluta. Við ætlum okkur að gera bátinn út frá Torfunesbryggjunni til hvalaskoðunarferða og sérferða ýmisskonar. Ætlunin er að gera bátinn út árið um kring, en mestur krafturinn verður yfir sumarið þegar mestur fjöldi ferðamanna er á svæðinu. Við gerum ráð fyrir því að strax í byrjun skapist hér allt að 10 ársverkum og ef væntingar okkar ganga eftir gætu störfin orðið enn fleiri. Skrifað af Þorgeir 05.06.2013 13:17Tvö risaskip á Akureyri i morgun MSC Magnifica og Adventure of the Seas mynd Þorgeir Baldursson 2013 Tvö stæðstu skipin sem að heimsækja Akureyri i sumar © mynd þorgeir 2013 Þjóðdansahópur Dansaði fyrir skipsgesti © mynd þorgeir 2013 Mikil traffik i Göngugötunni © mynd þorgeir Baldursson 2013 Tvö skemmtiferðaskip komu til Akureyrar í morgun, MSC Magnifica og Adventure of the Seas. Með skipunum eru um 5000 farþegar, þannig að nóg er að gera hjá fyrirtækjum sem þjónusta ferðamenn. MSC Magnifica er 92.409 brúttólestir og farþegarnir eru um 2.500. Adventure of the Seas er hins vegar stærsta skemmtiferðaskip sem lagst hefur að bryggju á Akureyri, 137 þúsund brúttótonn. Farþegarnir eru um 3.000 og um 1.000 manns í áhöfn. Heimild Vikudagur.is Skrifað af Þorgeir 04.06.2013 16:20fyrsta Skemmtiferðaskip Sumarsins Astor Skemmtiferðarskipið Astor © Mynd Þorgeir Baldursson 2013 Farþegarnir Streyma i land © mynd þorgeir Baldursson 2013 Uppistaðan Eldriborgarar © mynd þorgeir 2013 Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins 2013 heitir Astor Skemmtiferðaskipið Astor er 20.606 brúttótonn. Farþegar eru 590. brottför skipsins mun verða um kl 19 i kvöld Hér að neðan eru helstu upplýsinar um skipið Vessel's DetailsShip Type: Passengers shipYear Built: 1987 Length x Breadth: 176 m X 22 m Gross Tonnage: 20704, DeadWeight: 3498 t Speed recorded (Max / Average): 17.9 / 15.5 knots Flag: Bahamas [BS] Call Sign: C6JR3 IMO: 8506373, MMSI: 308214000 Skrifað af Þorgeir 03.06.2013 21:232408-Geir ÞH 150 Heldur til Rækjuveiða útifyrir norðurlandi Gert Klárt fyrir rækjuveiðar © Mynd Þorgeir Baldursson 2013 Leysin tekin klár © mynd þorgeir Baldursson 2013 Sterturinn gerður Klár © mynd þorgeir 2013 Belgurinn gerður klár © mynd Þorgeir 2013 Rækjuskiljan © mynd Þorgeir 2013 Kári Páll Jónasson Netagerðarmeistari © mynd Þorgeir 2013 Tybon Hlerar © mynd þorgeir 2013 Belgnum spólað uppá trommuna © mynd Þorgeir 2013 Geir ÞH 150 leggur úr höfn © mynd Þorgeir 2013 Tekin Hringur fyrir Ljósmyndarann © mynd Þorgeir 2013 Haldið til veiða um kl 19 i kvöld © mynd þorgeir Baldursson Nýjasti Báturinn á úthafsveiðum á rækju er 2408 Geir ÞH 150 frá þórshöfn en hann hélt til veiða úti fyrir norðulandi nú skömmu fyrir kl 19 i kvöld Skrifað af Þorgeir 03.06.2013 17:30Svipmyndir frá Sjómanndeginum 2013 á Akureyri Húni 11 EA 740 á leið inná pollinn © mynd þorgeir Baldursson 2013 Smábátar sigla inná pollinn © mynd þorgeir 2013 Skipstjóri Húna Viðir Benidiktsson i Brúnni © mynd þorgeir 2013 Arngrimur Jóhannson lenti Sjóflugvél sinni á Pollinum © mynd þorgeir 2013 Arngrimur tekur á loft milli Bátanna Friður EA 54 © mynd þorgeir 2013 6874-Friður EA 54 © mynd Þorgeir 2013 Gideon © mynd þorgeir Baldursson 2013 Hraðbátur Hafsteins © mynd þorgeir 2013 Arngrimur lentur milli bátanna Oddeyrin i baksýn © mynd þorgeir 2013 6720-Jói Sig © mynd þorgeir 2013 5423- Nói EA 611 © mynd þorgeir 2013 Bræðurnir um borð i Húna Ingi og Þorsteinn Péturssynir © mynd þorgeir 2013 Þórhallur Mattiasson ©mynd Þorgeir 2013 Hluti áhafnar Húna i Hofi á sjómannadaginn © mynd þorgeir 2013 Árni Þórðar og Kristinn © mynd þorgeir 2013 Grimur Karlsson Likanasmiður © mynd þorgeir 2013 Bátalikönin skoðuð i Hofi © mynd þorgeir Baldursson 2013 Skrifað af Þorgeir 03.06.2013 14:54Útgerð Linubáta frá Neskaupstað Linubátar við bryggju i Neskaupstað ©mynd þorgeir Baldursson 2012 Löndun úr Óla á Stað © mynd þorgeir Baldursson 2012 Sumarið 2011 komu tveir yfirbyggðir línubátar til Neskaupstaðar og hófu að gera út þaðan. Þessir aðkomubátar öfluðu vel og aflinn var stór og góður þorskur og meðafli lítill. Árangur þessara báta spurðist út og í fyrrasumar komu einir 15 bátar af þessari gerð til Neskaupstaðar og reru þaðan, þar af 8-10 sem gerðu þaðan út um lengri tíma. Þessir bátar komu frá Sandgerði, Garði, Siglufirði, Grindavík, Eskifirði og Húsavík. Mikil ánægja ríkti með aflabrögðin enn á ný en bátarnir fiskuðu mest í svonefndri Gullkistu sem er í norðanverðu Seyðisfjarðardýpi og fóru þeir gjarnan út á 30-40 mílur. Í fyrra fiskaði Vonin frá Sandgerði mest þessara báta en hún hóf veiðar í maí-júní og reri í Kistuna alveg fram í desember. Afli Vonarinnar á þessum tíma var 494 tonn. Næstaflahæsti báturinn var síðan Hafdís frá Eskifirði með 440 tonn. Í heildina lönduðu yfirbyggðu línubátarnir 2400 tonnum af góðum þorski í Neskaupstað á síðasta ári. Núna í maímánuði byrjuðu línubátarnir að tínast austur. Alls eru komnir 6 bátar og koma þeir frá Sandgerði, Garði, Siglufirði og Eskifirði. Hafa bátarnir verið að afla vel og sem dæmi lönduðu þeir samtals 50 tonnum sl. miðvikudag. Heimild www.svn.is Skrifað af Þorgeir 03.06.2013 09:26Þorsteinn Pétursson Heiðraður á sjómannadaginn 2013 Konráð Þorsteinn og Snjólaug © mynd Þorgeir Baldursson 2013 Þorsteinn Pétursson. Þorsteinn
Pétursson fyrrverandi lögreglumaður og forvarnarfulltrúi er fæddur hér á
Akureyri 27. maí 1945. Foreldrar Þorsteins voru hjónin Pétur
Jónsson skósmíðameistari og Sigurbjörg
Pétursdóttir húsmóðir. Þorsteinn
var ekki gamall þegar hann tók þá ákvörðun að gerast sjómaður. Aðeins 13 ára
gamall fór hann í sína fyrstu veiðiferð á togara og eins og hann nefndi við mig
var þetta sumarvinnan hans þetta sumarið. Togarinn var Sléttbakur EA - 4 og var
Áki Stefánsson skipstjóri á skipinu. En
það fer ekki allt í lífinu eins og maður ætlar sér, kannski sérstaklega þegar
menn eru ekki eldri en 13 ár þegar ákvörðun er tekin. 1962
útskrifaðist Þorsteinn sem gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og strax þá um vorið, nánar tiltekið 1.
júní réði hann sig til skipasmíðastöðvar KEA og fór að læra skipasmíði. Hann
útskrifaðist sem skipasmiður í maí 1966. Um það leyti sem hann hóf störf í
skipasmíðastöðinni var verið að byrja smíði á Húna II HU - 2 en sem nú ber
einkennisstafina Húni II EA - 740 en það eru einkennisstafir Snæfells sem
Kaupfélag Eyfirðinga átti á sínum tíma og gerði út. Þorsteinn vann allan tímann
að smíði Húna II. en hann var afhentur eigendum sínum í ágúst 1963 og skal því
kannski engan undra að hann beri sterkar taugar til skipsins. Eiginkona
Þorsteins er Snjólaug Aðalsteinsdóttir frá Dalvík. Þau giftust 1966 og fluttu til
Dalvíkur ári seinna og þar starfaði hann sem lögreglumaður til ársins 1970 er
þau fluttust aftur til Akureyrar. Þau eiga þrjá syni og níu barnabörn. Þegar
hingað var komið hóf hann störf sem lögreglumaður og starfaði sem slíkur allt
fram til ársins 1986 en þá gerist hann tollfulltrúi hjá sýslumannsembættinu hér
á Akureyri og starfaði hann við það í nokkur ár en þá sneri hann aftur til starfa
í lögreglunni og varð forvarnarfulltrúi við það embætti jafnframt því sem hann sinnti starfi sem lögreglumaður allt til
starfsloka 2010. Eins
og fram kemur í skjalinu sem fylgir þessari heiðrun Sjómannafélags Eyjafjarðar
er félagið að heiðra Þorstein fyrir óeigingjarnt starf sitt vegna hans vinnu
við varðveislu og uppbyggingu gamalla báta hér á Akureyri. Þar er verkefnið
Húni II lang stærst og viðamesta verkið. 1994
var örlaga ár í sögu Húna II. Þá átti að fara að farga skipinu en sem betur fer
voru ekki allir á því að þannig ætti saga þess að enda. Hjónin Þorvaldur
Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir keyptu skipið og gerðu það haffært á ný og
gerðu það út til hvalaskoðunar frá Hafnarfirði um árabil. 2003 komu þau á skipinu til Akureyrar
og reifuðu þá hugmynd hvort ekki væri áhugi hér á svæðinu um að kaupa skipið
hingað norður. Þorsteinn Pétursson fór af stað í verkið og ári síðar, rétt
fyrir sjómannadag 2004 kom skipið hingað norður. Í kjölfar þess voru stofnuð
Hollvinasamtök Húna II og eru ófá handtökin sem unnin hafa verið um borð í
skipinu undir handleiðslu skipasmiðsins Þorsteins Péturssonar og ber honum og
öllum þeim sjálfboðaliðum í Hollvinasamtökunum gott vitni. Steini,
ég ber þér kveðjur frá sjómönnum í Sjómannafélagi Eyjafjarðar og hafðu kærar
þakkir fyrir þetta starf þitt þannig að saga þessa arms sjómennskunnar falli
ekki í gleymskunnar dá. Samantekt Konráð Alfreðsson Formaður SE
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 387 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 538 Gestir í gær: 59 Samtals flettingar: 997126 Samtals gestir: 48682 Tölur uppfærðar: 23.11.2024 08:58:07 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is